Viðtal við Hilmar Þór Karlsson.

Fjárfestatengsl geta verið flókin þegar félag er með mörg hundruð eða jafnvel þúsundir hluthafa innanborðs. Hilmar Karlsson, verkefnastjóri þjónustu og vöruþróunar hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð, hefur unnið að þróun ESIS hluthafakerfisins fyrir viðskiptavini verðbréfamiðstöðvarinnar hérlendis og erlendis. ESIS hjálpar fyrirtækjum að hafa umsjón með og greina hluthafahópinn sinn betur og fleira til. „Markmið okkar er að lesa þarfir viðskiptavina okkar og vera skrefinu á undan. Við njótum þess að starfa í alþjóðlegu umhverfi Nasdaq, þar sem við kynnumst nýjum straumum og stefnum á erlendum mörkuðum sem geta einnig gagnast hér. ESIS hluthafakerfið er eitt dæmi um þetta, vefgátt sem auðveldar umsýslu um alla hluthafa í félögum sem er til mikils hagræðis fyrir notendur.“ 

Möguleikar í ESIS eru margir. Útgefendur þurfa að viðhalda hluthafaskrá og geta sýnt hana á skrifstofu félagsins, en í ESIS er einfalt að kalla eftir þessum lista út frá rauntímaupplýsingum. Einnig geta þeir skoðað hluthafalista niður á kennitölur, stöður og fjárfestahegðun, eins og til dæmis hvort viss hópur sé að selja sig meira út en annar og öfugt. Þá geta útgefendur sent hlutafjármiða til skattsins beint úr kerfinu og tekið út XML hlutafjármiða. Jafnframt geta útgefendur skuldabréfa fengið aðgang að upplýsingum um eigendur skuldabréfa, ef skilmálar skuldabréfsins heimila það. Nasdaq verðbréfamiðstöð birtir mánaðarlega upplýsingar um meðalveðsetningu hlutabréfa á markaðnum í heild sinni, en í ESIS getur félag séð veðsetningarhlutfallið fyrir sitt félag sérstaklega. „Þetta eru mikilvægar upplýsingar fyrir félög, sem geta hjálpað félaginu að meta áhættur sem tengjast eignarhaldi á félaginu og hvernig best sé að haga samtölum við fjárfesta.“

Við viljum gera viðskiptavinum kleift að hafa verkfæri til staðar til að uppfylla tilskipunina þegar þar að kemur og styðja þá í að taka vel utan um hluthafahópinn og þjónustu í kringum þá.“

Hilmar Þór Karlsson

SRD II: Innleiðing tilskipunar um hluthafaréttindi skapar tækifæri fyrir útgefendur verðbréfa 

Innan Evrópska efnahagssæðisins (EES) hefur endurskoðuð tilskipun um réttindi hluthafa – „Shareholder Rights Directive II“ (SRD II) verið innleidd sem er ætlað að skapa gagnsærra, ábyrgara og sjálfbærara fyrirtækjaumhverfi innan þess. Áætlað er að tilskipunin verði færð í lög hér á næstu misserum. SRD II miðar að því að styrkja stöðu hluthafa, efla samskipti þeirra og skráðra félaga og hvetja til langtímafjárfestingar á mörkuðum. „Það aukna gagnsæi sem kemur með SRD II getur skapað tækifæri fyrir útgefendur sem mun styrkja markaðinn í heild sinni. SRD II gerir útgefendum kleift að bera kennsl á alla hluthafa sína, sem síðan hjálpar þeim að skilja og greina fjárfestagrunninn betur og sníða sín samskipti og fjárfestatengsl betur að þeirra þörfum. Í dag geta útgefendur t.d. ekki séð undirliggjandi eigendur að hlutabréfum sem liggja á safnreikningum í nafni fjármálafyrirtækja, en með því að lyfta hulunni af þessu geta útgefendur fengið betri innsýn inn í fjárfestahópinn sem hægt er að nota í stefnumótun fjárfestatengsla. Við viljum gera viðskiptavinum kleift að hafa verkfæri til staðar til að uppfylla tilskipunina þegar þar að kemur og styðja þá í að taka vel utan um hluthafahópinn og þjónustu í kringum þá.“ 

  

Nýtt í farvatninu sem styður við betri fjárfestatengsl 

Nasdaq verðbréfamiðstöð er með fleiri vöruþróunarverkefni í vinnslu, þar á meðal skilagreinar á arðgreiðslur og nýtt greiningartól fyrir útgefendur sem mun veita félögum enn betri yfirsýn yfir bæði  hluthafahópinn og eigendur skuldabréfa. „Þarna verður um að ræða mjög áhugaverðar upplýsingar um fjárfesta, niður á kyn og aldur til að mynda og út frá mismunandi tegundum fjárfesta og búsetu. Slíkar upplýsingar geta sýnt mismunandi „trend“ í fjárfestahópnum, til dæmis hvort hópurinn sé að yngjast eða eldast að meðaltali, en það getur stutt félög í fjárfestatengslum og markaðsstarfsemi sinni gagnvart nýjum fjárfestum.“