Hvernig fer skráning skuldabréfa hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð fram?

Skráning skuldabréfa hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð er einfalt ferli, sem sérfræðingar okkar geta leiðbeint þér og veitt ráðgjöf um.
Sæktu um skráningu með því að fylgja einföldu ferli sem lýst er hér fyrir neðan.

Öll eyðublöð vegna skuldabréfa má finna hér

Skráningarferli skuldabréfa

01

Umsókn um úthlutun ISIN-númers fyrir skuldabréf.

02

Eyðublað vegna viðurlagaskimunar (e. sanction screening), samþykktir félagsins, ákvörðun stjórnar, skráningarvottorð félagsins og upplýsingar um skipulag samstæðu, sé ekki um að ræða útgefanda þegar er viðskiptavinur.

03

Útgáfusamningur og útgáfulýsing, samþykktir félagsins, staðfesting á ákvörðun um skuldabréfaútgáfu, ásamt skilmálum (e. Term sheet).

Hægt er að skila gögnum með eftirfarandi hætti:

Stafrænt undirrituð, með tölvupósti,

csd.iceland@nasdaq.com

Á skrifstofu okkar,

Laugavegur 182, 105 Reykjavík, Ísland

Með bréfpósti,

Laugavegur 182, 105 Reykjavík, Ísland

Við erum þér innan handar

Eftir skráningu skuldabréfa hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð veitum við þjónustu og ráðgjöf út allan líftíma þeirra. Vinsamlegast tilkynnið okkur um væntanlegar breytingar og fyrirtækjaaðgerðir svo við getum tryggt að upplýsingar ykkar haldist uppfærðar.

Dæmi um fyrirtækjaaðgerðir

Afborganir

Viðbótarútgáfa

Innlausn skuldabréfa

Skilmálabreytingar