Tryggðu að eignir fjárfesta þinna séu í vörslu hjá traustum og óháðum aðila. Sæktu um skráningu hlutdeildarskírteina með því að fylgja eftirfarandi einföldum skrefum.
Öll eyðublöð vegna hlutdeildarskírteina má finna hér
Umsókn um um úthlutun ISIN-númers fyrir hlutdeildarskírteini.
Eyðublað vegna viðurlagaskimunar (e. sanction screening), staðfest afrit samþykkta félagsins, útdrátt fundargerðar stjórnarfundar um útgáfu hlutdeildarskírteina, skráningarvottorð félagsins og upplýsingar um skipulag samstæðu, sé ekki um að ræða útgefanda þegar er viðskiptavinur.
Útgáfulýsingu og útgáfusamning til að skrá hlutdeildarskírteini hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð.
Laugavegur 182, 105 Reykjavík, Ísland
Laugavegur 182, 105 Reykjavík, Ísland
Eftir skráningu hlutdeildarskírteina hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð veitum við leiðsögn út allan líftíma þeirra. Vinsamlegast tilkynnið okkur um væntanlegar breytingar og fyrirtækjaaðgerðir svo við getum tryggt að upplýsingar ykkar haldist uppfærðar.
Dæmi um fyrirtækjaaðgerðir:
Breytingar á lögheiti
Fjölgun/fækkun hlutdeildarskírteina
Innlausn