Published on 06.11.26
Þann 11. október 2027 styttist uppgjörstími á evrópskum verðbréfamörkuðum úr T+2 yfir í T+1 uppgjör. Það kann að hljóma eins og lítil breyting, en áhrifin á verðbréfaviðskipti, uppgjör og markaðsinnviði eru umtalsverð.
Í dag eru flest verðbréfaviðskipti á evrópskum mörkuðum gerð upp tveimur virkum dögum eftir viðskiptadag (T+2). Með T+1 styttist sá tími í einn virkan dag.
Því styttri sem tíminn er á milli viðskipta og uppgjörs, þeim mun minni verður mótaðila- og uppgjörsáhætta. Markaðsaðilar bera áhættu í skemmri tíma ef eitthvað fer úrskeiðis áður en verðbréf og greiðslur skipta um hendur.
T+1 krefst breytinga á verkferlum, samskiptum og tímasetningum hjá verðbréfafyrirtækjum, vörsluaðilum, verðbréfamiðstöðvum og öðrum þátttakendum markaðarins. Upplýsingar þurfa að berast fyrr og með meiri sjálfvirkni en áður.
Nasdaq verðbréfamiðstöð undirbýr innleiðinguna samhliða öðrum evrópskum mörkuðum. Sérstaklega þarf að huga að staðbundnum þáttum, svo sem uppgjöri gegn greiðslu í íslenskum krónum og samspili við innlenda innviði.
Árangursrík innleiðing T+1 byggir á samvinnu allra sem koma að verðbréfaviðskiptum. Evrópskir markaðir hafa þegar gefið út vegvísi og ítarlegar leiðbeiningar til að tryggja samræmda og hnökralausa yfirfærslu og Seðlabanki Íslands hélt fræðslufund um innleiðinguna fyrir íslenska markaðsaðila, þar sem Nasdaq verðbréfamiðstöð gafst kostur á að kynna áhrifin á íslenskt verðbréfauppgjör.
Í stuttu máli: T+1 snýst um hraðara uppgjör, minni áhættu og skilvirkari ferla. Til að breytingin gangi vel fyrir sig þurfa markaðsaðilar að hefja undirbúning og aðlaga ferla og kerfi að styttri uppgjörstíma.
Ítarefni: