Published on 08.05.26
Nasdaq verðbréfamiðstöð (systurfyrirtæki Nasdaq Iceland kauphallarinnar) hefur ráðið Elísu Björgu Grímsdóttur í stöðu sérfræðings. Elísa mun einblína á samskipti og þjónustu við viðskiptavini, ásamt þróun á nýjum vörum og þjónustu.
Hún kemur til Nasdaq frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) þar sem hún starfaði við miðvinnslu á fjármálasviði, en þar áður starfaði hún við vörslu og uppgjör verðbréfaviðskipta hjá Kviku banka.
Elísa er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum
Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til okkar.
